Seðlabankastjórarnir, Davíð Oddsson og Eiríkur Guðnason, gagnrýna harðlega frumvarp um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands sem lagt var fram af forætisráðherra en er nú til umfjöllunar hjá viðskiptanefnd Alþingis.

Í niðurlagi umfjöllunar sinar, sem birt hefur verið á vef Seðlabankans, segja þeir mjög mikilvægt að kasta ekki til höndunum við breytingar á lögunum. Sýna þurfi mikla gát og vandvirkni til að fyrirbyggja að úr verði stjórnsýslubastarður, sem geri stjórnina óskilvirka og valdi tortryggni innan sem utan bankans.

Í umsögninni segir að tölvupóstur hafi borist frá viðskiptanefnd Alþingis síðdegis þann 10. febrúar þar sem óskað var eftir umsögn Seðlabankans um frumvarpið. Var veittur frestur til að skila umsögn til 12. febrúar. Seðlabankinn óskaði bréflega eftir því þann 11. febrúar að fá þriggja vikna frest til að skila umsögn „um svo þýðingarmikil mál eins og venja er að veita samkvæmt leiðbeiningum þingsins,“ segir í umsögninni.

„Með bréfi formanns viðskiptanefndar dags. 12. febrúar var frestur Seðlabankans til umsagnar lengdur til mánudags 16. febrúar. Í raun var því enginn virkur dagur falinn í frestinum, og getur það naumast hafa verið ætlun nefndarinnar,“ segir þar jafnframt.

Þá segja þeir engar vísbendingar í frumvarpinu sem né umsögn forsætisráðherra sem gefi til kynna að ekki hafi verið staðið faglega að ákvörðunum um stjórn bankans síðustu áratugina. Jafnframt gagnrýna þeir að ekki hafi fengist gefið upp hverjir sömdu frumvarpið, líkt og venja sé, og ekki rökstutt hvers vegna því sé haldið leyndu.

Segja efnahagsáfall gefa tilefni til endurskoðunar en slíkt vanti í frumvarpið

Þá kemur einnig fram í umsögn bankastjóranna að það  efnahagsáfall sem yfir hefur dunið gefi vissulega tilefni til að huga að löggjöf um Seðlabanka Íslands. Þær breytingar sem lagðar séu til í frumvarpinu myndu engu breyta um stöðu eða styrk bankans til að hafa áhrif á atburðarás eins og þá sem varð.

„Ríkt tilefni væri til að fara yfir skyldur Seðlabankans við slíkar aðstæður, þau úrræði sem honum eru búin og verkaskiptingu stofnana á borð við Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlit, svo dæmi sé tekið,“ segir í umsögn bankastjóranna.

„Nú þykir mörgum sem láta sig þessi mál varða og best þekkja til að rétt sé að kanna hvort ekki eig að efla fjármálaeftirlit við yfirsýn og yfirstjórn regluverks á fjármálamarkaði (regulation) en um leið styrkja umsjónarvald og ábyrgð Seðlabanka gagnvart bankalegum þáttum (supervision, inspection) og draga um leið úr gráum svæðum milli slíkra stofnana. Fyrirliggjandi frumvarp tekur ekki með neinum hætti á slíkum þáttum né öðrum jafn brýnum. Þetta eru þó þeir þættir sem mest eru ræddir í þeim löndum sem let hafa í áþekkum efnahagslegum áföllum og Ísland."

Sjá umsögninga í heild sinni. (pdf skjal)