Seldar gistinætur voru 5,5 milljónir hér á landi árið 2014 og fjölgaði um tæp 21% frá fyrra ári. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 80% af heildarfjölda gistinátta og fjölgaði um 25% frá fyrra ári en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6%.

Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 60% allra gistinátta, 17% gistinátta voru á tjaldsvæðum og 23% á öðrum tegundum gististaða. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum á milli ára.

Heildarfjöldi gistinátta hefur aukist um 2,5 milljónir eða um 83% á síðastliðnum fimm árum. Samhliða fjölgun gistinátta hefur framboð gistirýmis vaxið mjög á undanförnum árum. Þrátt fyrir mikla aukningu á framboði hefur nýting gistirýmis einnig aukist. Heildarnýting herbergja á hótelum og gistiheimilum var 57,1% á síðasta ári en var 43,5% árið 2010.