Davíð Lúther Sigurðarson, stofnandi Basic International ehf., sem sér um The Color Run og Gung Ho á Íslandi og á Norðurlöndunum, hefur selt 51% hlut sinn í félaginu.

Kaupandi er Manhattan ehf. sem átti fyrir 49% hlut og á félagið þar með Basic International að fullu eftir kaupin. Ragnar Már Vilhjálmsson hefur tekið við sem framkvæmdarstjóri fyrirtækisins. Kaupverð er trúnaðarmál.

Ragnar segir að Basic International muni byggja á þeim góða grunni sem lagður hefur verið og bæta enn frekar í að því er kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Hann segir að fyrirhugað sé að halda allt að 12 viðburði á þessu ári á Íslandi, í Svíþjóð og Danmörku og er stefnt á að þeim muni fjölga enn frekar á næstu árum. Davíð Lúther mun eftir söluna einbeita sér að öðrum verkefnum.