Icelandic Water Holdings hf, sem flytur út vatn undir merkinu Icelandic Glacial, og Icelandic Middle East Commercial Company frá Kuwait hafa gert með sér samning um dreifingu á Icelandic Glacial í Kuwait. Í gegnum nýja dreifingaraðila verður Icelandic Glacial í boði á fínni hótelum, veitingastöðum og búðum um land allt.

Icelandic Glacial er þekkt fyrir einstakan hreinleika og fyrir að hafa hlotið viðurkenningar fyrir  umhverfisvæna framleiðsluhætti. Vatninu er tappað á flöskur úr lind fyrirtækisins í landi Hlíðarenda í Ölfusi og þaðan dreift víða um heim.

Vatnið er nú selt á 24 mörkuðum víða um heiminn. Auk Kuwait er Icelandic Glacial til sölu í Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Frakklandi, Hollandi, Belgíu, Luxemborg, Rússlandi, Hvíta-Rússlandi, Kalíníngrad, Úkraínu, Kína, Taiwan, Macau, Hong Kong, Tælandi, Suður-Kóreu, Singapore, Perú, Mexíkó, Púertó Ríkó, Bermúdaeyjum, og á Íslandi. Jafnframt notar franska snyrti- og tískuvörufyrirtækið Christian Dior vatnið við framleiðslu á kreminu Dior Snow.

Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og eru Jón Ólafsson og Kristján Ólafsson stærstu hluthafar Icelandic Water Holdings ásamt bandaríska drykkjavöruframleiðandanum Anheuser Busch.