SJ1 sem er dótturfélag Sjóvá almennra trygginga hefur selt 43.034.483 hluti til Sjóvá líftryggingafélags og 243.465.517 hluti til Milestone, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Milestone er í eigu Karls Wernerssonar, Steingríms Wernerssonar og Ingunnar Wernersdóttur.

Karl Wernersson situr í stjórnum Glitnis, Milestone, Sjóvá almennra trygginga og Sjóvá líftryggingafélags. Fjöldi hlut í eigu Karls Wernerssonar og tengdra aðila er óbreyttur eftir viðskiptin eða samtals 2.960.139.441 hlutir.