Samsung Galaxy snjallsími fyrir Android stýrikerfið.
Samsung Galaxy snjallsími fyrir Android stýrikerfið.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Skipti hf. hafa undirritað samning um sölu á Tæknivörum ehf. til Eignarhaldsfélagsins Tækni ehf. Með umsjón söluferlisins fór MP banki og er kaupverðið trúnaðarmál á milli aðila. Sölutap Skipta vegna sölunnar er áætlað um 400 milljónir króna.

Tæknivörur var stofnað á árinu 1992 og annast félagið innflutning á ýmsum notendabúnaði tengdum fjarskiptum. Tæknivörur er umboðsaðili fyrir nokkra af stærstu framleiðendum á sviði fjarskipta s.s. Sony Ericsson, LG, Samsung og Thomson netbúnaði. Markmið Tæknivara er að vera leiðandi á sviði fjarskipta og notendabúnaðar fyrir fyrirtæki og einstaklinga.