Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borginni, verður næsti borgarstjóri, Sól­ey Tóm­as­dótt­ir, odd­viti VG, verður for­seti borg­ar­stjórn­ar Reykja­vík­ur og S. Björn Blön­dal, odd­viti Bjartr­ar framtíðar, formaður borg­ar­ráðs. Hall­dór Auðar Svans­son, odd­viti Pírata, fær jafnframt sæti í borg­ar­ráði.

Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að samkomulag um flokk­a fjóra í borg­ar­stjórn verði kynnt í dag með fyrirvara um samþykki flokksstofnana.