Greiningardeild Kaupþings banka gerir ráð fyrir að samanlagður hagnaður félaganna í Kauphöllinni muni nema rétt tæplega 45 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins.

Til samanburðar nam hagnaður sömu félaga rúmlega 19,3 milljörðum króna á sama tímabili árið 2005 og nemur áætluð hagnaðaraukning því um 132% milli ára. Þetta á við um þau félög sem afkomuspá bankans nær til.