Stjórnir Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs hafa samþykkt að hefja formlegt samrunaferli með það að markmiði að bera sameiningu sjóðanna undir atkvæði á aukaársfundum í haust. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Stjórnir beggja sjóða staðfestu þetta í dag í ljósi niðurstöðu könnunarviðræðna sem hófust í maí.

Framundan verður þá að staðfesta tryggingafræðilegar forsendur, fara yfir eignir og eignamat og framkvæma áreiðanleikakönnun hjá báðum sjóðum. Þá segir að samþætta þurfi samþykktir sjóðanna og fjalla um ýmsa aðra þætti.

Stjórnir Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs telja að með sameiningu verði til sterkari starfseining með aukinni sérfræðiþekkingu og enn öflugri eigna- og áhættustýringu.

Stjórnirnar telja að sameining stuðli einnig að hagræðingu í rekstri og betri þjónustu til hagsbóta fyrir sjóðfélaga.