Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs Advania, er hættur störfum hjá félaginu. Að sögn Stefáns Hrafns hafði viðskilnaðurinn aðdraganda og er í samvinnu við yfirstjórn fyrirtækisins. Stefán Hrafn greindi frá því að hann væri hættur á Facebook síðu sinni í gærkvöldi.

„Útvarp Laugardalur, nú verða sagðar fréttir: Í gær var síðasti vinnudagurinn minn hjá Advania þar sem ég hef unnið í tæp ellefu ár við markaðsmál, almannatengsl og viðburðahald og vonandi látið eitthvað að mér kveða. Viðskilnaðurinn hafði aðdraganda og er í fínni samvinnu við yfirstjórn fyrirtækisins. Það var einfaldlega kominn tími til að breyta til. Ég ætla að byrja á því að taka mér almennilegt sumarfrí í fyrsta skipti í aldarfjórðung og takast svo á við ný og spennandi verkefni á haustdögum. Þanng að: So long and thanks for all the fish. En þó jafnframt: This not an exit,“ segir í færslunni.