Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,0%, nær óbreytt frá síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í júní. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá MMR. Fylgi Pírata jókst um rúm tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 15,4% en fylgi Samfylkingarinnar minnkaði um rúm þrjú prósentustig og mældist nú 13,1%. Þá jókst fylgi Framsóknarflokksins um tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 8,6%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 47,7% og jókst um tæpt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 46,8%.

  • Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,0% og mældist 24,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Pírata mældist nú 15,4% og mældist 13,2% í síðustu könnun.
  • Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,1% og mældist 16,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,8% og mældist 10,7% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 8,6% og mældist 6,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 8,4% og mældist 8,0% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,4% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
  • Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,1% og mældist 3,5% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,0% og mældist 5,4% í síðustu könnun.
  • Stuðningur við aðra mældist 2,1% samanlagt.