Upplýsingatæknifyrirtækið Svar hefur ráðið til sín sjö nýja starfsmenn, þau Önnu Lilju Sigurðardóttur, Bessa Toan Ingason, Grétar Örn Hjartarson, Írisi Dögg Eiðsdóttur, Katrínu M. Guðjónsdóttur, Lindu Wessman og Sigríði Birnu Sigurðardóttur.

Nýju starfskraftarnir sem flestir hafa framhaldsmenntun á sviði viðskipta, bókhalds og tölvunarfræði. Í fréttatilkynningu segir fyrirtækið að ráðningarnar komi í kjölfar vegna aukinna umsvifa.

„Það er mjög ánægjulegt hversu öfluga einstaklinga við höfum fengið til liðs við okkur og aukinn áhugi kvenfólks á störfum í tæknigeiranum er auðvitað gleðiefni. Við erum með fjölbreytta viðskiptavini með mismunandi þarfir og sífellt meiri áhersla á sjálfvirkni býr til ný og spennandi tækifæri og verkefni fyrir okkur starfsfólkið og eins fyrir viðskiptavini,“ segir Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Svars.

Svar veitir viðskiptavinum sínum tæknilausnir í skýinu og starfsfólk fyrirtækisins er sérþjálfað í að skipuleggja umbætur á tæknimálum viðskiptavina sinna. Bókhaldskerfi, rekstrarkerfi og verk- og tímaskráningakerfi hafa meðal annars tekið miklum breytingum á undanförnum árum.

„Við sem störfum í tæknigeiranum búum svo vel að vinna í þessu hraða og spennandi umhverfi sem aldrei hættir að þróast. Það er auðvitað nauðsynlegt að halda í öryggið með því að nota eldri leiðir sem virka vel en jafnframt að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum og lausnum. Tækninni eru í raun engin takmörk sett og það er nauðsynlegt að vera á tánum til að geta leiðbeint og sinnt viðskiptavinum sem best“ Rúnar.