Sveitarfélögin í landinu hafa verið rekin með tekjuuhalla undanfarin tíu ár. Mestur mældist tekjuhallinn 1,1% af landssframmleiðslu árið 2004, eða um 10 milljarðar króna. Það ár voru heildarútgjöld sveitarfélaganna tæp 9% umfram heildartekjur þeirra eins og kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Í fyrra er áætlað að tekjuhallinn hafi verði heldur minni eða 0,6% af landsframleiðslu sem er svipaður halli og gert er ráð fyrir í ár. Hallarekstur þýðir m.ö.o. að sveitarfélögin eru jafnt og þétt að safna skuldum segir fjármálaráðuneytið. Áætlað er að skuldir sveitarfélaganna í heild nálgist 150 milljarða króna í ár, sem er umfram árstekjur þeirra.

Af einstökum útgjaldaþáttum ræður umfang fjárfestingar sveitarrfélaganna miklu um afkomu þeirra hverju sinni. Á árinu 2004 nam fjárfesting þeirra t.d. um 20 milljörðum króna eða ríflega 17% af heildartekjum þeirra.

Á yfirstandandi ári er áætlað að fjárfesting mælist rúmmlega 11% af heildartekjum sem skýrir að hluta til minni tekjuhalla. "Þar sem umfang sveitarfélaganna í hinum opinbera búskap er nú nálægt 30% er mikilvægt að þau séu meira samstíga ríkissjóði í fjármálaaðgerðum sínum og hægi á vexti útgjalda þegar tekjur þeirra aukast hratt. Með því geta þau greitt niður skuldir og styrkt fjárhagsstöðu sína og stuðlað að stöðugleika í efnahagslífinu," segir fjármálaráðuneytið.