Á sumrin lifnar yfir svikastarfsemi sem beinist að því að svíkja út fé af fyrirtækjum. Í nýjum fréttapósti Samtaka verslunar og þjónustu er varað við þessu. Svo virðist sem þeim sem stunda þessa iðju treysti því að auðveldara sé að villa um fyrir sumarafleysingafólki heldur en starfsmönnum sem hafa meiri reynslu. Þeir sem stunda svik og pretti af þessu tagi beita sífellt nýjum aðferðum svo erfitt er að varst þá. SVÞ fá fjölmargar ábendingar og beiðnir um aðstoð þegar fyrirtæki hafa lent í klóm fyrirtækja sem stunda fjárplógsstarfsemi. Algengast er að kvartað sé undan skráningarfyrirtækinu European City Guide.

Starfsemi European City Guide snýst um að fá fyrirtæki til að samþykkja skráningu í gagnabanka, að því er virðist án endurgjalds, en í smáu letri sem fylgir skilmálum kemur fram að greiða þurfi miklar fúlgur fyrir skráninguna. Reikningar frá fyrirtækinu sem fylgja í kjölfarið koma því óþægilega á óvart. Ef reikningar eru ekki greiddir er skuldurum hótað hörðum innheimtuaðgerðum og ærnum viðbótarkostnaði. SVÞ ráðleggja fyrirtækjum að greiða ekki slíka reikninga nema þau telji sig hafa efnt til skuldanna.

Nú berast af því fréttir frá Svíþjóð að European City Guide og þeirra líkar séu farin að beita nýjum aðferðum við svikastarfsemina. Þannig er algengt að hringt sé frá fyrirtæki sem tilkynnir að það vinni fyrir viðskiptavin sem hafi óskað eftir að vera skráður á Netið með sama nafn og fyrirtækið sem hringt er í, en með öðru léni, t.d. www.nonnabud.com (í stað .is). Á meðan samtalinu stendur er fyrirtækinu boðið að kaupa sjálft umrætt netfang (með endingunni .com). Þeir sem samþykkja það komast að því síðar að þeir greiða margfalt hærra verð en ef þeir hefðu gert þetta að eigin frumkvæði.

European City Guide er skráð á Spáni. Það er fyrirtækið Silver Stone Management einnig, sem sérhæfir sig í því að svíkja út fjármuni með því að bjóða mikla ávöxtun á peninga með lítilli fyrirhöfn og telja Íslendingum trú um að nú sé tækifærið til að hagnast á sterkri stöðu krónunnar. SVÞ hafa fengið kvörtun frá aðila sem lagði inn þúsundir bandaríkjadala á bankareikning fyrirtækisins í von um skjótfengan gróða en peningarnir hurfu fljótt og ekki hefur enn náðst í fulltrúa fyrirtækisins, sem áður var svo vinsamlegur og hjálpfúsir í símhringingum og bréfasendingum. Frekari upplýsingar á vefsíðu SVÞ