Kántrípoppprinsessan Taylor Swift hefur fest kaup á nýju stórhýsi í Rhode Island í Bandaríkjunum. Húsið sem er fjögurra hæða, sextán herbergja, 1.580 fermetra hús sem er við ströndina í bænum Watch Hill. Húsinu fylgir 210 metra strandlengja. Kemur þetta fram í frétt TMZ, en taka ber fram að þótt fasteignasalinn hafi staðfest að húsið hafi verið selt þá hefur hann ekki gefið upp kaupandann.

Samkvæmt frétt TMZ greiddi Swift tæpar átján milljónir dala fyrir húsið, eða um 2,1 milljarð króna, sem þykir þó ágætlega sloppið því uppsett verð á húsinu nam 24 milljónum dala.

Húsið var byggt árið 1930 og má sem dæmi nefna að í því eru átta arnar, og þar af er einn marmaraarinn í aðalsvefnherberginu, sem auk þess sem tvö baðherbergi fylgir því herbergi. Í bílskúrnum er pláss fyrir fimm bíla og þá fylgir eigninni sundlaug og sundlaugarhús.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Swift kemst í fréttirnar fyrir fasteignakaup. Síðasta sumar var grín að því gert þegar hún eyddi fimm milljónum dala í hús í Hyannis Port í Massachusetts vegna þess að húsið stóð við hlið ættaróðals Kennedy fjölskyldunnar. Hún var þá í sambandi við Conor Kennedy, sonarson Bobby Kennedy.

Swift hefur þó auðveldlega efni á kaupum sem þessum, því í fyrra er talið að tekjur hennar hafi numið um 57 milljónum dala og er var hrein eign hennar talin vera um 80 milljónir dala í maí í fyrra.

Nýtt hús Taylor Swift.
Nýtt hús Taylor Swift.

Nýtt hús Taylor Swift.
Nýtt hús Taylor Swift.

Nýtt hús Taylor Swift.
Nýtt hús Taylor Swift.

Nýtt hús Taylor Swift.
Nýtt hús Taylor Swift.

Nýtt hús Taylor Swift.
Nýtt hús Taylor Swift.

Nýtt hús Taylor Swift.
Nýtt hús Taylor Swift.