Danska blaðið Politiken fjallar ítarlega í dag um fríblaðsáform Dagsbrúnar í Danmörku. Kastljósinu er beint að Svenn Dam, nýja forstjóra félagsins, en einnig kemur fram í viðtali við Gunnar Smára Egilsson, forstjóra Dagsbrúnar, að það komi vel til greina að hefja útgáfu fríblaða á hinum norðurlöndunum og í Hollandi ef vel tekst til í Danmörku.