Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 21 milljarður króna í útboði íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs fyrir helgi.

Samkvæmt tilkynningu sjóðsins var ákveðið að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf:

HFF150224 að nafnvirði 2,3 milljarðar króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,67%.

HFF150434 að nafnvirði 1,9 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,36%.

HFF150644 að nafnvirði 800 milljónir króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,19%.

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,47% og 4,49% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 28.ágúst 2008.