Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur ákveðið að framlengja skilafrest óbindandi tilboða í hlutabréf ríkisins í Landssíma Íslands til þriðjudagsins 17. maí næstkomandi. Áður var miðað við 6. maí.

Í frétt frá einkavæðingarnefnd segir að ástæða framlengingar séu minniháttar tafir sem orðið hafa á afhendingu útboðsgagna.