Ríkiskaup hafa óskað eftir að taka á leigu um 2.600 fermetra húsnæði á höfuðborgarsvæðinu fyrir Tryggingastofnun ríkisins til 25 ára. Er gert ráð fyrir góðu aðgengi fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði, sem og að húsnæðið sé í nálægð við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur.

Miðað er við að húsnæðið geti verið í allt að þremur hæðum, en skilafrestur tilboða er til 1. mars næstkomandi. Fyrirspurnarfrestur rennur út til 21. febrúar en svarfrestur er til og með 26. febrúar. Nánar má lesa um málið á úboðsvefur.is .