Líftæknifyrirtækið Algalíf og Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra skrifa undir fjárfestingasamning klukkan 10 í dag vegna örþörungaverksmiðju á Reykjanesi. Samningurinn verður undirritaður í húsakynnum Algalífs að Bogatröð 10, Ásbrú, Reykjanesbæ. Algalíf Iceland ehf. var stofnað í ágúst 2012 og er í eigu norska félagsins NutraQ A/S.

Áætlað er að uppbygging örþörungaverksmiðjunnar muni kosta um tvo milljarða króna (17,6 milljónir Bandaríkjadala) og hún verði fullkláruð um mitt ár 2015.

Nú starfa átta manns hjá fyrirtækinu. Starfsmönnum verður fjölgað í febrúar og verða um 30 þegar verksmiðjan verður komin í fullan gang.

„Í verksmiðjunni verða ræktaðir örþörungar sem nefnast Haematococcus Pluvialis, en úr þeim er unnið virka efnið Astaxanthin. Það er sterkt andoxunarefni sem notað er í fæðubótarefni og vítamínblöndur, auk þess að vera neytt í hylkjaformi. Mikill og vaxandi markaður er fyrir efnið og heimsframleiðslan núna annar hvergi nærri eftirspurn.

Skilyrði eru sérstaklega hagstæð á Íslandi til hátækniframleiðslu af þessu tagi, en nálægð við alþjóðaflugvöll, hreint vatn, örugg afhending orku og hæft starfsfólk eru meðal þeirra þátta sem réðu staðarvalinu,“ segir í tilkynningu vegna nýju verksmiðjunnar.

Þar segir jafnframt að verksmiðjan verði sú fullkomnasta sinnar gerðar í heiminum. Þörungarnir verði ræktaðir í lokuðu kerfi þar sem næringu, hita og birtumagni verði stýrt nákvæmlega.

Algalíf nýtir nú 1.500 m² húsnæði sem þegar er til á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, en mun byggja við það um 6.000 m². Gengið hefur verið frá öllum samningum við KADECO, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. Samtals verða verksmiðja og rannsóknarstofur á 7.500 m² þegar uppbyggingunni verður lokið. Framleiðslan hefst strax í ár en fullum afköstum verður náð árið 2016.

Verksmiðja Algalífs mun nota 5 megavött af raforku til framleiðslunnar. Þegar hefur verið gengið frá samningi við HS orku um raforkukaup til 25 ára.

Framkvæmdastjóri Algalífs á Íslandi er Skarphéðinn Orri Björnsson. Hann hefur um árabil unnið í lyfjageiranum, meðal annars hjá Actavis og einnig sem sérfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Sameinuðu þjóðunum vegna uppbyggingar á nútíma lyfjaverksmiðjum í Afríku.