Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að ríkið væri ekki í aðstöðu til að byrja að semja fyrr en það sæi í hvað stefndi á almenna vinnumarkaðnum. Hann sagði að almenni markaðurinn þyrfti líka að hafa vissu fyrir því að ríkið myndi ekki yfirbjóða það sem samið yrði um á almenna markaðnum.

Enn fremur sagði hann koma til greina að hækka skatta ef komandi kjarasamningar fælu í sér launahækkanir sem ógni efnahagslegum stöðugleika. Þá sagði hann einnig að stjórnvöld myndu hugsanlega grípa inn í verkfall heilbrigðisstarfsmanna með lagasetningu. Slíkt væri óhjákvæmilegt ef lífi fólks væri stefnt í hættu.

Óhætt er að segja að þessi ummæli ráðherrans hafi farið illa í viðsemjendur á opinbera markaðnum. Bandalag háskólamanna (BHM) hefur setið við samningaborðið í margar vikur og verkfallsaðgerðir félagsmanna staðið í rúmar 7 vikur. Að óbreyttu stefnir í verkfall Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga en það hefst á miðvikudaginn verði ekki búið að semja fyrir þann tíma.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla ráðherrans. Þar segir:

„Miðað við yfirlýsingu háttvirts forsætisráðherra í sjónvarpsfréttum Stöðvar tvö í kvöld (gærkvöld) er ljóst að ekki verður samið við hjúkrunarfræðinga í bráð. Hjúkrunarfræðingar vonast til að samið verði áður en til verkfalls kemur en svo virðist sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að ekki verði samið við opinbera starfsmenn fyrr en samið hefur verið við almenna markaðinn. Telur Fíh að þar sé vegið að samningsrétti opinberra starfsmanna.

Það er vægast sagt sérkennilegt að í kjarabaráttu að annar samningsaðilinn búi yfir því afli að geta sett lög á hinn samningsaðilann sem gerir sjálfsagt og eðlilegt verkfallsvopn að engu. Fíh telur að komi til lagasetningu á verkfall hjúkrunarfræðinga muni það einungis valda úlfúð og ekki til þess fallandi að leysa málin á farsælan hátt fyrir báða aðila.
Það er von Fíh að á samningafundi á morgun komi raunhæft tilboð frá viðsemjendum okkar sem miðar að því að laun hjúkrunarfræðinga verði sambærileg og laun annarra háskólamenntaðra og taki ákveðið skref í að jafna launamun kynjanna hjá hinu opinbera."

BHM birti einnig yfirlýsingu á sinni heimasíðu. Þar segir:

„BHM lýsir furðu  vegna ummæla forsætisráðherra í fréttum Stöðvar 2 í kvöld (gærkvöld). Þar lýsti hann því yfir að ekki yrði samið við ríkisstarfsmenn fyrr en að loknum samningum á almennum vinnumarkaði. Með framgöngu sinni dregur ráðherrann  samningsrétt  ríkisstarfsmanna í efa.

Kjaraviðræður BHM við ríkið eru á mjög viðkvæmu stigi. Boðað hafði verið til samningafundar hjá ríkissáttasemjara á morgun (í dag).  Í ljósi ummælanna dregur BHM samningsvilja ríkisins í efa.
Samninganefnd BHM hefur verið boðuð til fundar í hádeginu á morgun til að ræða stöðuna í framhaldi af ummælum forsætisráðherra."