Það eru spennandi tímar framundan í Kauphöllinni en uppgjörshrinan er í þann mund að hefjast. Nýherji ríður á vaðið og birtir uppgjör sitt á morgun.

Á fimmtudaginn verður stór í Kauphöllinni, því þá munu Bakkavör, Exista, Kaupþing, Straumur-Burðarás og Mosaic Fashions (fyrir fjórða fjórðung - félagið er með skakkt uppgjörsár) birta uppgjör sín. Á föstudaginn mun FL Group birta sitt uppgjör.

"Hlutabréfamarkaðurinn hefur hækkað mikið það sem af er ári. Væntingar fjárfesta um góð uppgjör eru komnar fram í háu hlutabréfaverði. Við teljum að eitthvað fari að hægja á hækkunarferli hlutabréfa á næstu mánuðum en að árið í heild skili mjög góðri ávöxtun," segir greiningardeild Landsbankans.