Gildi íslensku úrvalsvísitölunnar OMXI6 er 956,42 stig eftir lokun markaða í dag. Vísitalan hefur hækkað um alls 5,14% frá áramótum.

Nokkuð rólegt var á hlutabréfamarkaði í Kauphöll Íslands í dag. Heildarvelta með hlutabréf nam tæplega 15 milljónum króna. Þar af nam velta með bréf í Marel um 8 milljónum króna. Gengi bréfa í félaginu er 139,5 krónur á hlut. Bréfin lækkuðu um 0,36% í viðskiptum. Alls lækkaði úrvalsvísitalan um 0,9% í dag.