Niðurstöður rannsókna á útgjöldum heimilanna sýna að meðalstæð heimila hefur minnkað samhliða því að neyslugjöld á mann hafa hækkað um 9,1% undanfarin ár.

Í nýjum Hagtíðindum kemur fram að neysluútgjöld á heimili árin 2004–2006 hafa hækkað um 7,7% frá tímabilinu 2003–2005 og voru tæpar 368 þúsund krónur á mánuði. Á sama tíma hefur meðalstærð heimilis minnkað úr 2,5 einstaklingum í 2,47 og hafa útgjöld á mann því hækkað um 9,1%. Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni eru um 390 þúsund krónur á mánuði, tæpar 160 þúsund krónur á mann. Ráðstöfunartekjur flestra hópa eru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin eru að meðaltali um 94% af ráðstöfunartekjum. Í úrtakinu voru 3.550 heimili, 1.607 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var svörun því aðeins um 45%.