Vélar á vegum Icelandair lentu á Keflavíkurflugvelli í 77% tilvika á réttum tíma í september síðastliðnum. Þetta er öllu betra en hjá Wow air en vélar félagsins lentu á réttum tíma í 69% tilvika í mánuðinum. Til samanburðar héldu komutíma 50 stærstu flugfélaga Evrópu í 85% tilvika í ágúst, samkvæmt uppfjöllun netmiðilsins Túrista .

Fram kemur á vef Túrista að um átta a hverjum tíu ferðum Icelandair og Wow air voru á réttum tíma í síðasta mánuði. Fram kemur í umfjöllun um komu- og brottfarir flugfélaganna að eins og oft áður stóðust brottfarir oftar en komutímar.

Meðaltöf á ferðum Icelandair og Wow air voru 2 til 8 mínútur.