Velta á fasteignamarkaði jókst lítillega milli vikna en hafði í vikunni á undan dregist saman um 20% milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 82% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 49 en voru 45 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 75,6 á viku frá áramótun.

Í vikunni sem leið nam veltan tæplega 1,5 milljarði króna en í fyrri viku nam veltan um 1,4 milljörðum króna.

Meðalvelta á hvern samning var 30,4 milljónir króna og minnkar lítillega frá vikunni á undan þegar meðalvelta á hvern samning var 31,4 milljónir. Meðaltal á árinu er 33 milljónir á hvern samning.