Bréf hækkuðu lítillega á markaði í dag. Hagar hækkuðu mest í dag eða um 0,78% í 1,8 milljón króna viðskiptum. Reitir hækkuðu um 0,71%, TM hækkaði um 0,73%, HB Grandi um 0,64%, Eimskip um 0,62%.

Reginn lækkaði mest, eða um 1,27% í 2,9 milljón króna viðskiptum, Icelandair um 0,74% í 180 milljón króna viðskiptum, Eik um 0,71%, Marel um 0,25%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,02% í dag og var lokagildi hennar 1.561,92 stig. Hún hefur hækkað um 19,14% frá áramótum.