Halldór Þorgeirsson úr röðum kvikmyndagerðarmanna hefur sent iðnaðarráðherra bréf þar sem hann biður um liðsinni til að fá sérstakt hús í eigu eins bankans, Ó. Johnson og Kaaber húsið sem er staðsett inn við Höfða.

Þar vilja kvikmyndamenn setja upp kvikmyndastúdíó, og kvikmyndavinnslu.

„Það mál er í gangi og verður vonandi að veruleika í næstu viku," skrifar Össur á heimasíðu sína en hann titlar sig jafnframt sprotamálaráðherra.