Fríhöfnin mun þann 29. febrúar n.k. opna fyrstu Victoria‘s Secret verslunina á Íslandi í brottfararverslun Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Victoria Secret er íslendingum að góðu kunn en fyrirtækið er leiðandi í smásölu á snyrtivörum og undirfatnaði fyrir konur. Greint er frá þessu í tilkynningu.

Í versluninni sem er 70m2 að stærð, býðst viðskiptavinum Fríhafnarinnar mikið úrval af vinsælustu vörunum í Victoria‘s Secret Beauty vörulínunni, þar á meðal verða hin þekktu Bombshell og VS Angel ilmvötn, sem slegið hafa í gegn víða um heim. Þar verður einnig boðið upp á sérstakt úrval af leðurvörum, töskum, nærbuxum, bolum og öðrum hátísku fylgihlutum frá Victoria‘s Secret.

Miranda Kerr, Victoria´s Secret
Miranda Kerr, Victoria´s Secret
© Aðsend mynd (AÐSEND)