Miðvikudaginn 17. desember næstkomandi stendur Viðskiptaráð fyrir opnu húsi þar sem húsgögn, skrifstofubúnaður og raftæki verða til sölu vegna fyrirhugaðra flutninga ráðsins nú um áramótin í Borgartún 35. Kemur þetta fram í frétt á vefsíðu Viðskiptaráðs.

Dæmi um húsbúnað sem verður til sölu eru skrifborð, hillur, uppþvottavél, veggklukka og örbylgjuofn.

Salan mun standa fyrir frá kl. 15-18 og er sérstaklega tekið fram í fréttinni að heitt verði á könnunni.