Viðskipti með hlutabréf í Icelandair í Kauphöllinni í dag námu 471 milljón króna. Bréfin hækkuðu um 0,47%. Þá var einnig nokkur velta með bréf í VÍS eða upp á 98 milljónir. Gengi bréfanna stóð nánast í stað, 0,09% lækkun. Viðskipti með önnur skráð félög voru mun minni í dag.