Heimila á skortsölu í Abu Dhabi, þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu ADX kauphallarinnar. Markmiðið er að auka veltu á mörkuðum og að gera verðbréfamarkaði í landinu fýsilegri fyrir erlenda fjárfesta. Abu Dhabi verður því líklegast fyrsta þjóðin í Persafóasamstarfinu, sem heimilar slík viðskipti.