Almenningur getur komið á framfæri hugmyndum og ábendingum til hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar í gegnum svæði á vef forsætisráðuneytisins. Þar geta landsmenn sent uppástungur að niðurskurði. Þá er einnig hægt að senda tillögur á netfangið [email protected].

Hagræðingarhópurinn starfar undir stjórn Ásmundar Einars Daðasonar alþingismanns og í honum sitja auk hans Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður, Vigdís Hauksdóttir alþingismaður og Unnur Brá Konráðsdótti alþingismaður.