Kosið verður í stjórn Vodafone á aðalfundi sem fer fram á Hilton Nordica hótel á miðvikudaginn. Fimm stjórnarsæti eru í boði en sex í framboði.

Í framboði eru allir núverandi stjórnarmenn að viðbættum Vilmundi Jósefssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Samtaka atvinnulífsins. Það eru þau Anna Guðný Aradóttir, Erna Eiríksdóttir, Heiðar Már Guðjónsson, Hildur Dungal og Hjörleifur Pálsson. Sá síðastnefndi er núverandi formaður stjórnarinnar.

Nákvæmlega sömu aðilar buðu sig fram í stjórnina í fyrra en þá náði Vilmundur ekki kosningu.