Vilmundur Jósefsson var endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) fram á næsta ár. Tilkynnt var um endurkjörið á aðalfundi SA sem nú stendur yfir.

Kosið var með rafrænum hætti á meðal aðildarfyrirtækja SA og lauk henni á hádegi í dag. Vilmundur hlaut 92,6% greiddra atkvæða og var þátttaka góð, að því er fram kemur á vef SA.

Vilmundur Jósefsson hefur verið formaður SA frá árinu 2009 en áður var hann varaformaður samtakanna um þriggja ára skeið. Vilmundur hefur setið í stjórn SA um árabil en hann var formaður Samtaka iðnaðarins árin 2000-2006 og var stjórnarmaður í SI 1994-2000. Vilmundur er viðskiptafræðingur frá H.Í.

Þá var einnig kjörin í dag ný stjórn SA fyrir starfsárið 2012 til 2013. Ný inn í stjórnina koma Ólafur Marteinsson, Ramma hf., Gunnar Sverrisson ÍAV hf., Svana Helen Björnsdóttir, Stika ehf. og Jens Pétur Jóhannsson Rafmagnsverkstæði JRJ ehf.

Úr stjórninni ganga Hermann Guðmundsson, N1 hf., Aðalheiður Héðinsdóttir, Kaffitári ehf., Loftur Árnason, Ístaki hf. og Kristín Pétursdóttir, Auði Capital hf.

Stjórn SA 2012-2013 er því þannig skipuð:

  • Adolf Guðmundsson, Gullberg ehf.
  • Arnar Sigurmundsson, Samtök fiskvinnslustöðva
  • Árni Gunnarsson, Flugfélag Íslands
  • Birna Einarsdóttir, Íslandsbanki hf
  • Finnur Árnason, Hagar hf.
  • Friðrik Jón Arngrímsson, Landssamband ísl. útvegsmanna
  • Grímur Sæmundsen, Bláa lónið hf.
  • Guðmundur H. Jónsson, Norvik hf.
  • Gunnar Sverrisson, ÍAV hf.
  • Helgi Magnússon, Eignarhaldsfélag Hörpu ehf.
  • Hjörleifur Pálsson, Össur hf.
  • Jens Pétur Jóhannsson, Rafmagnsverkstæði RJR ehf.
  • Margrét Kristmannsdóttir, PFAFF hf.
  • Ólafur H. Marteinsson, Rammi hf.
  • Ólafur Rögnvaldsson, Hraðfrystihús Hellissands hf.
  • Rannveig Rist, Alcan á Íslandi hf.
  • Sigríður Margrét Oddsdóttir, Já Upplýsingaveitur ehf.
  • Sigurður Viðarsson, Tryggingamiðstöðin hf.
  • Svana Helen Björnsdóttir, Stiki ehf.
  • Tryggvi Þór Haraldsson, RARIK ohf.