Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 309 stig í nóvember og lækkaði um 1,5% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Þetta er þriðji mánuðurinn í röð þar sem vísitala íbúðaverðs lækkar lítillega en í júlí s.l. hækkaði vísitalan í fyrsta skipti í 12 mánuði, eða frá því í júlí í fyrra og þá hækkaði vísitalan aftur í ágúst.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað síðasta árið en í mars og apríl á þessu ári tók vísitalan nokkra dýfu niður á við. Þannig lækkaði vísitalan um 3,8% í mars sl. sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Þá sést jafnframt hvernig vísitalan hefur nú náð þriggja ára lágmarki, en vísitala íbúðaverðs hefur ekki verið jafn lág og nú síðan í desember 2006 þegar hún mældist rúm 306 stig.

Íbúðaverð hefur lækkað töluvert, eða um 13,5% á föstu verðlagi, frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum). Þangað til í júlí á þessu ári hafði íbúðaverð þannig aðeins hækkað tvisvar milli mánaða á hálfu öðru ári. Þá hefur íbúðaverð lækkað um 8,5% frá upphafi þessa árs.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitala íbúðaverðs um 1,6%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1% en lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 11,1%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.