Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2015 er 422,1 stig og hækkaði um 0,67% frá fyrri mánuði. Mælist verðbólga því enn 0,8% líkt og í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Einn helsti áhrifavaldurinn á vísitöluna er að vetrarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,8% (áhrif á vísitöluna 0,24%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð leiga) hækkaði um 1,24% (0,18%) og rekstur ökutækja hækkaði um 1,4% (0,11%).

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu hins vegar um 8,7% (-0,12%) og verð á mat og drykkjarvörum lækkaði um 0,7% (-0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% og vísitala án húsnæðis hefur lækkað um 0,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,0% verðbólgu á ári, eða 2,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis.