Eftir að hafa lækkað um 6% fyrr í dag tók Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] viðsnúning um kl. 15 í dag. Lækkun Úrvalsvísitölunnar nemur nú 2,41% þegar þetta er skrifað, kl. 15:40.

FL Group [ FL ] hefur lækkað mest í dag og nemur lækkun fyrirtækisins 8,2%. Þá hefur Spron [ SPRON ] lækkað um 6,3% og Exista [ EXISTA ] um 5%. Öll þessi fyrirtæki höfðu lækkað yfir 10% fyrr í dag.

Velta með hlutabréf er um 10,3 milljarðar.

Gengisvísitalan hefur einnig lækkað og stendur nú í 160,5 stigum eftir að hafa farið upp í tæp 162 fyrr í dag.