Vodafone hefur stefnt Fjarskiptasjóði ríkisins og Símanum vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Vodafone að stefnt sé vegna samnings milli Símans og Fjarskiptasjóðs um háhraðanettengingar í dreifðum byggðum landsins og telur Vodafone að það feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð við Símann. Samningurinn var ekki tilkynntur til Eftirlitsstofnunar EFTA sem þurfi að samþykkja ríkisaðstoð áður en hún sé veitt.

„Vodafone telur að efnislega feli samningurinn í sér verulegar ívilnanir af almannafé fyrir einn aðila á fjarskiptamarkaði og raski verulega samkeppni.  Vodafone krefst þess, að umræddur samningur verði dæmdur ólögmætur og bótaskylda hins opinbera verði viðurkennd.“

Í tilkynningunni segir að forsaga málsins sé sú að á árinu 2008 hafi Fjarskiptasjóður, fyrir hönd ríkisins, óskað eftir tilboðum frá aðilum sem vildu taka að sér að veita háhraðanetþjónustu á svæðum þar sem ekki eru markaðslegar forsendur fyrir slíkri þjónustu. „Alls bárust sjö tilboð í verkið frá fjórum aðilum. Lægsta tilboðið var frá Símanum og hljóðaði upp á 378 milljónir. Hæsta tilboðið var líka frá Símanum og hljóðaði upp á 5 milljarða króna. Í innsendum tilboðum buðu fjarskiptafyrir­tækin ólíkar tæknilegar lausnir og ólíkan verktíma, og skýrist hinn mikli verðmunur á tilboðunum af því. Í kjölfar útboðsins var gengið til viðræðna við Símann á grundvelli lægsta tilboðsins,“ segir í tilkynningunni.

Samningur við Símann var undirritaður í febrúar á síðasta ári og var þá verulega frábrugðinn útboðslýsingunni, að því er fram kemur í fréttatilkynningu Vodafone.

„Verktíminn hafði verið lengdur, tilslakanir gerðar á tæknilegum kröfum, samningurinn var nú gengistryggður og þeim stöðum sem verkefnið átti að ná til hafði verið fjölgað. Væntanlega í þeim tilgangi að auka greiðslur til Símans. Þá tryggir samningurinn Símanum einkarétt á að veita þjónustu gegnum þann búnað sem settur er upp. Það telur Vodafone afar óeðlilegt, enda ættu öll fjarskiptafyrirtæki að hafa jafnan aðgang selja þjónustu í gegnum búnað sem kostaður er af almannafé. Raunar áttu önnur fjarskiptafélög upphaflega að fá svokallaðán reikiaðgang að umræddum sendum, samkvæmt upphaflegum útboðsgögnum. Í endanlegum samningi er öðrum fjarskiptafyrirtækjum hins vegar eingöngu heimilt að endurselja þjónustu Símans, sem einnig er augljós hindrun á samkeppni,“ segir í tilkynningunni.

„Eftir undirritun samningsins milli Fjarskiptasjóðs og Símans óskaði Vodafone eftir afriti af samningnum. Þeirri ósk var hafnað. Eftir að hafa kært höfnunina til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál fékk Vodafone aðgang að hluta þeirra gagna sem um ræðir, en ekki öllum. Þetta telur Vodafone með öllu ólíðandi, enda beri að birta alla samninga opinberra aðila sem gerðir eru í kjölfar útboðs. Vinnulagið bendir til þess að umræddir samningar hins opinbera við Símann þoli illa dagsljósið.“

Mál Vodafone á hendur Fjarskiptasjóðs og Símanum var nýlega þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.