Hlutafjáraukning hjá Geysi Green Energy var kynnt með pompi og prakt fyrir rétt rúmu ári en ekki hefur tekist að fá bandaríska fyrirtækið Wolfensohn & Co til að efna hlutafjárloforð sitt. Wolfensohn ætlaði að koma með 15 milljónir dala inn í GGE og nú standa deilur um það á milli félagsins og Wolfensohn hvort fjárfestarnir hafi getað hætt við.

Um leið og tilkynnt var um aðkomu Wolfensohn var sagt frá aðkomu Ólafs Jóhanns Ólafssonar sem stjórnarformanns að GGE og fjárfestingu í því. Hún nam 10 milljónum dala en Ólafur Jóhann hefur síðan selt sinn hlut í félaginu og farið úr stjórn.

__________________________________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á vefnum. Hægt að óska eftir lykilorði og áskrift á vefnum.