Dohop hefur tekið saman upplýsingar um stundvísi flugfélaga. Þar kemur í ljós að WOW air var stundvísast allra flugfélaga í októbermánuði með 93,3% brottfara og lendinga á réttum tíma. Í síðasta mánuði var það breska lággjaldaflugfélagið EasyJet sem var stundvísast.

Afar lítill munur er þó á WOW air og EasyJet, eða um 0,2%, en síðarnefnda flugfélagið var stundvísara í komuflugi á meðan WOW air var stundvísara í heildina litið.

Icelandair var þriðja stundvísasta flugfélagið með 89% stundvísi í heildina.