Nýjasta bók spennusagnahöfundarins Yrsu Sigurðardóttur, Brakið , var í efsta sæti á metsölulista Rannsóknarseturs verslunarinnar fyrir dagana 25. til 31. desember. Þetta er fjórða vikan í röð sem Brakið er á efsta sæti listans en þá var bókin jafnframt mest selda bókin á Íslandi á síðasta ári.

Í öðru sæti listans var sem fyrr bókin Einvígið eftir Arnald Indriðason, sem jafnframt er næst mest selda bók ársins.

Listinn er nú tekinn saman vikulega og birtur á vef Rannsóknarsetursins.

Matreiðslubók Latabæjar eftir Magnús Scheving kom ný inn á listann yfir 10 mest seldu bækurnar í vikunni og endaði í þriðja sæti. Þá voru Hollráð Hugos eftir Hugo Þórisson í fjórða sæti og loks bókin Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf eftir sænska rithöfundinn Jonas Jonasson í fimmta sæti.

Gamlinginn var lengi vel mest selda bókin á árinu eða þangað til Einvígið og Brakið komu út í nóvember.

Í sjötta sæti metsölulistans í vikunni milli jóla og nýárs var bókin Útkall – ofviðri í Ljósufjöllum eftir Óttar Sveinsson og í sjöunda sæti var bókin Málverið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.

Mest seldu bækurnar á árinu

Sem fyrr segir var Brakið mest selda bókin á árinu 2011. Einvígið, sem næst mest selda bókin á árinu, var í efsta sæti þar til um miðjan desember.

Gamlinginn sem skreið út um gluggann var í þriðja sæti og Heilsuréttir Hagkaups eftir Sólveigu Eiríksdóttur í fjórða sæti. Í fimmta sæti var Stóra Disney köku- og brauðbókin .

Til gamans má geta þess að Brakið er ekki eina bók Yrsu á listanum yfir 10 mest seldu bækurnar á árinu því skáldsagana Ég man þig , sem kom út fyrir jólin 2010, er í 10. sæti listans yfir mest seldu bækurnar árið 2011. Yrsa er því höfundur tveggja bóka á listanum yfir 10 mest seldu bækur ársins.

Brakið eftir Yrsu Sigurðardóttur
Brakið eftir Yrsu Sigurðardóttur
© Aðsend mynd (AÐSEND)