Mannvirkjagerð er ein af þeim atvinnugreinum þar sem orkuskipti munu skipta mjög miklu máli eigi Íslendingar að ná loftlagsmarkmiðum sínum. Það er mikilvægt að fá öflug fyrirtæki eins og ÍAV til að draga úr koltvísýringslosun Íslands og um leið er svarað ákalli og loforði stjórnvalda um orkuskiptaátak í atvinnulífinu.

Með innleiðingu rafmagnsvinnuvéla þá tekur ÍAV ekki bara þátt í að draga úr losun heldur sparar félagið umtalsvert í orkukostnaði við rekstur vélarinnar.

Loftslagsskuldbindingar Íslands kalla á tafarlausar aðgerðir

Ísland hefur skrifað undir alþjóðlegar skuldbindingar um að draga úr kolefnislosun á hverju ári til ársins 2030, sett enn metnaðarfyllri landsmarkið fyrir sama ár og lögfest að Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2040. Ísland upplifði bakslag árið 2021 skv. bráðabirgðatölum frá Umhverfisstofnun þegar losun jókst um 1,9%.

„Það segir okkur að það er stórt verkefni framundan og okkur liggur mikið á,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orkuog loftslagsráðherra, í viðtali við RÚV 16. september síðastliðinn.

Skjót viðbrögð við orkuskiptum í greininni komu sannarlega á óvart en um leið var einstaklega ánægjulegt að upplifa það frumkvæði og þá framsýni sem þessir leiðtogar í atvinnulífinu sýna með því að stökkva á orkuskiptavagninn.

Náist umrædd markmið ekki þýðir það umtalsverð fjárútlát á næstu árum fyrir ríkissjóð við kaup á losunarheimildum á alþjóðlegum mörkuðum. Aðeins örfá ár eru til stefnu sem kallar á tafarlausar og metnaðarfullar aðgerðir í samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs.

Skjót viðbrögð orkuskiptaleiðtoga í atvinnulífinu

„Skjót viðbrögð við orkuskiptum í greininni komu sannarlega á óvart en um leið var einstaklega ánægjulegt að upplifa það frumkvæði og þá framsýni sem þessir leiðtogar í atvinnulífinu sýna með því að stökkva á orkuskiptavagninn og leggja þannig sitt af mörkum til að ná markmiðum Íslands í að draga úr losun koltvísýrings. Í vinnu við þetta verkefni hefur Brimborg upplýst og tekið samtal við Samorku – samtök orku- og veitufyrirtækja, Orkustofnun, Íslenska nýorku, SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, Bílgreinasambandið, Samtök atvinnulífsins, Landsvirkjun, Landsnet, Umhverfisstofnun og Umhverfisráðuneytið um þessi áform og höfum við fengið einstaklega jákvæð viðbrögð,“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.

Brimborg með mesta hlutdeild í sölu á rafknúnum atvinnubílum

Í samræmi við markmið Umhverfisstefnu Brimborgar, Visthæf skref, sem innleidd var árið 2007 þá hefur Brimborg lagt mikla áherslu á leiðtogahlutverk sitt í orkuskiptum á bílamarkaði með það að markmiði að hraða orkuskiptum.

Brimborg forgangsraðar gagnvart innflutningi á rafknúnum bílum og tækjum, hefur fyrst bíla- og tækjaumboða gefið út heildstætt sjálfbærniuppgjör, hefur þegar sett upp yfir 30 hleðslustöðvar á starfsstöðvum sínum, undirbýr uppsetningu 12 hraðhleðslustöðva á höfuðborgarsvæðinu, suðurnesjum og Akureyri, markaðssetur orkuskiptalausnir af miklum krafti, veitir starfsmönnum í sölu og þjónustu umfangsmikla þjálfun á þessari nýju tækni og veitir heimilum og fyrirtækjum ráðgjöf við orkuskipti og uppsetningu hleðsluinnviða.

Þetta hefur leitt til forystu Brimborgar í sölu á rafknúnum sendibílum með 40% hlutdeild, rafknúnum fólksbílum og jeppum með 23% hlutdeild og rafknúnum vinnuvélum með 100% hlutdeild.