Á haustmánuðum er væntanlegur á markað nýr rafbíll frá MG. Um er að ræða hlaðbak sem ber heitið MG4 og er hann vel búinn fimm manna fjölskyldubíll.

MG4 er fyrsti bíllinn frá MG í þessum tiltekna stærðarflokki. Bíllinn er byggður á nýjum MSP undirvagni fyrir rafbíla (Modular Scalable Platform) sem MG hefur þróað fyrir flatt gólf og lægri þyngdarpunkt. Í undirvagninum er rafhlaða bílsins sem er aðeins 110 mm á hæð og gerir kleift að auka plássið í farþegarýminu fyrir bæði farangur og farþega.

64 kWh rafhlaða

Forsala á MG4 hófst í vikunni og eru fyrstu bílarnir væntanlegir til BL í lok október. MG4 verður boðinn í Luxury útfærslu með 64 kWh rafhlöðu sem dregur allt að 435 km. Bíllinn er 201 hestafl, hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst er tæpar 8 sekúndur og hámarkshraði takmarkaður við 160 km/klst.

Vegna lágs þyngdarpunkts og 50:50 þyngdardreifingar hefur MG4 góða aksturseiginleika, ekki síst í kröppum beygjum þar sem örugg stýring og vel hannað fjöðrunarkerfið veitir ökumanni góða stjórn við misjafnar vegaðstæður, svo sem í hálku eða rigningu. MG4 kemur í upphafi með 400v rafhlöðukerfi og afturhjóladrifi en áformað er að næstu kynslóðir verði einnig boðnar í öðrum útfærslum, m.a. með 800v rafhlöðukerfi fyrir hraðari hleðslu og vali um tvo rafmótora við hvora drifrás í aldrifinni útfærslu. Verð MG4 Luxury er frá 4.800.000 kr.