Como vatn er einn af fallegustu stöðunum á Ítalíu. Þeir eru reyndar óskaplega margir, fallegustu staðirnir á Ítalíu. Vatnið er lítið, 37 ferkílómetrar að stærð og aðeins um tíundi hluti Garda vatns, sem er einmitt líka einn af fallegustu stöðunum á Ítalíu.

Veðrið er þokkalegt frá apríl en hitastigið er ekki orðið öruggt fyrr en í maí. September er að jafnaði góður en október er aðeins meira hættuspil. Sumarið er frekar milt en hitinn er hæstur 26 gráður í júlí – að meðaltali. Vatnið er í aðeins í 41 mínútna fjarlægð frá Mílanó ef ferðast er með lest og um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Malpensa flugvellinum sem Icelandair og Easy Jet lenda á.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði