Samtök ferðaþjónustunnar hafa ráðið Diljá Matthíasardóttur í starf hagfræðings samtakanna og hefur hún þegar hafið störf. Greint er frá ráðningu hennar í fréttatilkynningu.

Diljá hefur lokið BS.c. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og er auk þess með meistaragráðu í hagfræði frá Barcelona School of Economics með áherslu á þjóðhagfræði og fjármálamarkaði. Hún starfaði áður sem hagfræðingur á hagfræði- og peningastefnusviði Seðlabanka Íslands og sem sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka. Þá starfaði hún einnig við dæmatímakennslu við hagfræðideild Háskóla Íslands. Diljá er stjórnarmeðlimur og ein stofnenda HKH – Hagsmunafélags kvenna í hagfræði.

„Við erum mjög ánægð með að hafa fengið Diljá til liðs við Samtök ferðaþjónustunnar. Diljá bætist við öflugan hóp starfsmanna samtakanna og væntum við mikils af hennar störfum enda spennandi og krefjandi tímar framundan í ferðaþjónustu,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, í fréttatilkynningu.