„Ég er að taka við vildar­kerfinu sem er fjöl­mennasta og stærsta vildar­kerfi á landinu með 75 þúsund not­endur,“ segir Hugi Hall­dórs­son nýr við­skipta­stjóri Vildar­kerfis Sam­kaupa. „Þetta er mikil á­skorun þar sem þetta er svo stórt og mikið.“

Sam­kaup reka 60 verslanir víðs vegar um landið undir merkjum Nettó, Kram­búðarinnar, Kjör­búðarinnar og Iceland. Hjá fé­laginu starfa um 1250 starfs­menn í rúm­lega 660 stöðu­gildum.

Að sögn Huga fá með­limir í vildar­kerfinu ýmsa af­slætti gegnum smá­forrit fé­lagsins en Hugi mun einnig koma að markaðs­setningu á þeim kjörum not­endum stendur til boða. „Þetta snertir mörg svið innan Sam­kaupa. Ég mun starfa með sölu- og markaðs­stjórum Nettó, Kram­búðarinnar, Iceland og Kjör­búðarinnar. Þannig ég mun vinna þvert á verslunar­sviðin með öllu þessu fólki sem er spennandi.“

„Ég mun gera mitt besta til að bjóða sem bestu kjör fyrir þá sem nota appið. Þetta snýr um að laða bæði fólk að og halda því,“ segir Hugi og bætir við að það sé löngu orðið ljóst að fram­tíðin er staf­ræn.

Hugi var áður deildar­stjóri hjá Voda­fone, starfaði í markaðs­deildinni hjá Play og síðan markaðs­stjóri Ísorku.

Hann segir að öll sú reynsla muni nýtast sér í starfi. „Þetta er í rauninni alltaf bara þjónusta við við­skipta­vini og markaðs­starf. Ég held að reynslan mín muni nýtast í þessu og síðan er ég annálaður punkta­perri,“ segir Hugi og hlær. „Ég safna punktum út um allt.“

Hann segir þetta snúist fyrst og fremst um að fólk sjái á­vinning í því að nota smá­forrit Sam­kaupa. „Að það sé stans­laust eitt­hvað nýtt. Reynslan mín mun nýtast best í markaðs­setja kjörin út á við. Þetta er svona markaðs- og sölu­starf í grunninn.“

Spurður um hvað honum finnst skemmti­legast að gera utan vinnu segir Hugi það auð­svarað. „Það er að fara er­lendis. Ég fer mikið er­lendis. Ég hef stundum samt talið að það sé rann­sóknar­efni fyrri raun­vísinda­deildar Há­skóla Ís­lands að finna út úr því af hverju ég fer svona mikið er­lendis. Öll ferða­lög er­lendis,“ segir Hugi léttur.

„Ég ætlaði að verða for­seti þegar ég var lítill til að geta heim­sótt öll löndin í heiminum og ætli ég sé ekki enn að reyna að upp­fylla þann draum. Ég er ekki hálfnaður en er kominn með 53 lönd undir beltið,“ segir Hugi. Spurður um hver sé upp­á­halds ferða­staðurinn, segir Hugi Banda­ríkin vera rosa­lega skemmti­legt land. „En ég finn mestu róna þegar ég fer til Sikil­ey. Ég flyt rauð­vín inn þaðan. Þannig það er best að hlaða batteríin þar,“ segir Hugi.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast viðtalið í heild hér.