Freyja Steingrímsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands og hefur hún störf í lok maí. Í tilkynningu á heimasíðu félagsins segir að stjórnin hafi tekið einróma ákvörðun um ráðninguna.

Framkvæmdastjóri BÍ hefur umsjón með og ber ábyrgð á faglegu starfi félagsins, daglegum rekstri og áætlanagerð, sér um stefnumótun í samráði við stjórn og kemur fram fyrir hönd félagsins.

„Við erum stolt og ánægð að fá Freyju til liðs við okkur enda kemur hún inn með mikilvæga reynslu meðal annars af hagsmunabaráttu og starfsemi stéttarfélaga. Hún hefur stýrt stórum verkefnum fyrir BSRB og mun reynsla hennar og þekking af íslenskum stjórnmálum og stjórnsýslu nýtast vel,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ.

Freyja vann áður á Alþingi sem aðstoðarmaður formanns Samfylkingarinnar og fyrir það sem ráðgjafi hjá Indigo Strategies í Brussel þar sem hún stýrði meðal annars verk­efn­um fyr­ir regn­hlíf­ar­sam­tök evr­ópskra verka­lýðshreyfinga.

„Ég hlakka til að hlaupa af stað með þessari metnaðarfullu stjórn blaðamanna í þau spennandi verkefni sem framundan eru. Rétt eins og kemur fram í herferð BÍ hefur blaðamennska aldrei verið mikilvægari og ég mun leggja mig alla fram til að efla slagkraft og gæta hagsmuna blaðamanna sem og annarra þeirra sem miðla upplýsingum til almennings í hvívetna,“ segir Freyja Steingrímsdóttir.