Hugi Halldórsson og Ásdís Ragna Valdimarsdóttir hafa verið ráðin til Samkaupa. Hugi hefur tekið við stöðu viðskiptastjóra Vildarkerfis Samkaupa og Ásdís hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Kjör- og Krambúðanna.

Hugi hefur áður starfað sem deildarstjóri hjá Vodafone, markaðsdeild Play og síðustu ár sem markaðsstjóri Ísorku.

„Staða viðskiptastjóra Vildarkerfis Samkaupa er ný hjá fyrirtækinu, en hlutverk Huga verður að auka þægindi og bæta upplifun viðskiptavina í vildarkerfi Samkaupa,“ segir í tilkynningu Samkaupa.

Ásdís Ragna kemur til Samkaupa frá auglýsingastofunni Hér & Nú þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri. Áður hefur Ásdís einnig starfað við stafræna markaðssetningu hjá fyrirtækinu JoDís og hjá Arion Banka.

Ásdís lauk meistaragráðu í viðskiptafræði frá Copenhagen Business School árið 2021 og viðskiptafræðigráðu frá Háskóla Íslands árið 2018. Hún hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Kjör og Krambúðanna.

„Ég er mjög ánægð að fá Huga og Ásdísi til liðs við okkur, við erum að takast á við fjölda skemmtilegra verkefna hjá Samkaupum næstu misseri þar sem þekking og reynsla þeirra mun nýtast vel. Við höfum til að mynda starfrækt vildarkerfið okkar frá árinu 2020 með góðum árangri en ráðning Huga er liður í því að bæta enn frekar upplifun viðskiptavina í vildarkerfinu okkar,” segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa.

„Ásdís mun sinna fjölbreyttum verkefnum fyrir Kjör- og Krambúðina sem markaðsstjóri og bætist þar í frábæran hóp starfsfólks. Ég býð Ásdísi og Huga velkomin til starfa og hlakka til að starfa með þeim.”

Samkaup reka 60 verslanir víðs vegar um landið undir merkjum Nettó, Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og Iceland. Hjá félaginu starfa um 1250 starfsmenn í rúmlega 660 stöðugildum.