Örn Arnar Óskarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga og mun hefja störf í ágúst.

Síðastliðin átta ár hefur Örn starfað sem viðskiptastjóri fyrirtækjaþjónustu Landsbankans. Þar áður starfaði hann sem útibússtjóri Byrs Sparisjóðs eftir að sparisjóðirnir sameinuðust og sem sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga.

Í tilkynningunni segir „Örn hefur mikla reynslu úr atvinnulífinu og góða þekkingu á flestum atvinnugreinum. Langur starfsferill á fjármálamarkaði, ásamt því að þjónusta og greina ýmiskonar atvinnurekstur, veita honum góða innsýn í starfsumhverfi Sparisjóðsins. Hann hefur mikla reynslu af útlánastarfsemi, bæði til einstaklinga og fyrirtækja.“

Þá segir jafnframt að Örn þekki vel til á starfssvæði Sparisjóðsins en hann ólst upp á Kópaskeri.